Ađalvalmynd

Könnun

hvađ á best viđ ŢIG?

Áfram grćnir...

23. ágúst 2007 klukkan 14:26
Sandgerðisdagar framundan... og er ég alveg þvílíkt spennt... veit ekki af hverju en ég bara iða bókstaflega... kanski útaf ég er ekki búin að djamma á suðurnesjum í allt bókstaflega allt sumar...

Mig hlakkar svo til að hitta Sandgerðisfjölskylduna mína... Þá er ég sko að tala um Gissur og Salóme...
Mig hlakkar til að hitta alla vini mína... sérstaklega Ellu, Óttu, Kristínu, Ásu, Örnu Völu, Silju, Hjördísi, Binnu, Nonna, Fannar, Gígsla,Geira, MArkús, Rúnar, Veigar, Svavar, PJ...
Mig langar líka til að hitta Gullu og Lindu ætli þær komi??? úr Grindavík???
Af hverju getur Margrét ekki komið frá Svíþjóð???
Mig langar til að hitta gamla bekkjarfélaga...
Mig hlakkar líka til að hitta þá Sandgerðinga sme maður hittir oftast bara á djamminu þegar eitthvað stórt er að gerast...
Mig hlakkar til að sjá alla gömlu vinnufélagana...
Mig hlakkar til að detta í það...
Mig hlakkar til að vera ógeðslega græn... á svo mikið af grænum fötum... var að pæla hvort maður ætti ekki bara að vera svona grænálfur...

Allavega hlakka til að sjá alla..

Já og ég var að fá mér myspace... eftir mikla erfiðis vinnu og langan lærdóm á það kjaftæðið, tókst það... endilega addið mig sem vin...
Myspacið mitt er www.myspace.com/fridastef

Ég ætla að kaupa mér myndavél á föstudaginn... ætla taka mikið af óviðeigandi myndum... Rúnar og Andrés.. passið ykkur ég er snillingur að ná ykkur (munið hróaskelda!) hehehe

allavega fredda kveður að sinni...

Pabbi hommi??????

15. ágúst 2007 klukkan 23:43
Neinei.. pabbi ekki hommi.... en hann var hinsvegar aðal töffarinn um helgina þegar hann keyrði einn vagninn niður laugarveg á gay-pride... Keyrði Agnesi sys og vinkonur hennar, hann ekkert smá stoltur faðir... Enda einnig hægt að segja að athyglissýkin komi kanski frá honum :)


Agnes Systir upp á vagninum.. hún er svo sæt...

skvísa hún agnes


Þjóðhátíð var alveg geggjuð!!! Ógeðslega gaman.. .þó svo ég varla þori nú að hitta strákana úr sandgerði sem voru í íbúð.. öruglega alveg brjálaðir út í mig og Margréti að koma og vekja alla á mánudaginn.

En vá tjaldið mitt Örnu Völu, Margrétar og Vidda, fauk næstum á fimmtudagsnóttina... stengur brotnuðu og það rifnaði smá... en það reddaðist, það var bara öskrað hvort eitthver ætti tape yfir tjaldsvæðið, og allt reddaðist :) Svo var æði gæði veður eftir það.. sól og alles...

Ég held að þetta hafi ekki verið seinasta hátíðin mín....

Síminn minn hinsvegar algjörlega ... Já hann dó úr tópaks eitrun greyið...
En ég var á hvort eð er á leiðinni að kaupa mér nýjan síma, sem ég gerði og er hann ógeðslega flottur, en hinsvegar öll símanúmer týnd... þannig endilega ekki vera fúl ef ég veit ekki hver þið eruð þegar þið hringið... ég er bara varla með nein númer...

En annars þá er skólinn að fara að byrja og ég að læra fyrir stærðfræðipróf... fékk nýrnasteina þegar ég átti að fara í prófið þannig er að taka sjúkrapróf, ekkert smá pirruð... og svo er skólinn að fara að byrja... mikið stuð :) Mig hlakkar alveg ógeðslega til að byrja aftur...

En hef þetta ekki lengra að sinni....
Enda á að þakka þeim sem voru á þjóðhátíð með mér fyrir frábæra skemmtun...


helvíti langt síđan seinast...

24. júlí 2007 klukkan 13:53

hæhæ.. og gleðilegt sumar!!! búið að vera alveg geðveikt veður hér á Íslandi... bara æðislegt.. fyrir utan að ég er varla búin að sjá neitt af því, þar sem ég er alltaf að vinna til sjö :(...

En annars er það að frétta að ég er á leiðinni á þjóðhátíð. Það verður bara gaman, vona ég.. vonandi samt að mar verði ekki einhver ellismellur þarna.. .  En já Arna Vala og Viddi ætluðu að koma með en eru með einhvern bakþanka.. voða leiðinleg.. núna hef ég hinsvegar voða áhyggjur af því að mar verði kanski einn í tjaldi niðrí dal!! það yrði nú neiðarlegt... en ég veit nú um nokkra sandgerðisstráka sem eru að fara og svo búa Anna Fríða og Thelma bekkjarsystur auðvitað í eyjum... ætliu maður eyði ekki einhverjum tíma með þeim.. En ég held nú samt að maður fari frekar ekki með neitt tjald og lúli bara einhversstaðar en að gista ein.... hehehehe.. það yrði samt ógeðslega fyndið.. ógeðslegur lóner... hahahaha... Fyrsta þjóðhátíðin mín var nú eimmit þannig það var árið "99, ég og Bylgja fórum tvær saman keyptum tjald í rúmfatalagernum og viti menn tjaldið var gallað!!! ekki bætti það ástandið að við vorum ekki með neitt tjald, heldur þá hrundi Bylgja niður brekkuna og sleit liðband og var send heim með þyrlu... þannig ég var ein eftir ekki með neitt tjald.. farangurinn allur blautur... já og svo týndi ég kortinu mínu... þannig ég var með engan pening.. hinsvegar var ég með nóg af vodkaflöskum... já en djöfull skemmti ég mér vel þessa helgi hehehe....

En allavega er í hádegismat í vinnunni þannig hef þetta ekki lengra í bili...

En hér með auglýsi ég eftir tjaldfélaga.... vill einhver vera mem?????

sćlt veriđ fólkiđ og takk fyrir ţolinmćđina

08. júní 2007 klukkan 22:31
jæja.. núna er pásan mín búin..

Sumarið er komið, prófin búin og gekk mér alveg frábærlega!!! Alveg gríðarlega vel!!!! Ég er greinilega nörd og elska það...

Samfylkingin og sjálfstæðisflokkurinn saman í stjórn... Hefði miklu frekar viljað vinstri stjórn, en er sátt.... Tjái mig kanski eitthvað um það samstarf þegar það er almennilega byrjað og komið í gang...

Ég er búin að vera að vinna af mér rassgatið.. vinn í yndislegri vinnu en með hundleiðinlegan vinnutíma.. alltaf búin um 7 hálf 8, og þá dagurinn búin og svo bara með frí annan hvern lau og sun... Finnst ekki mikið gaman af því...

Svandís er búin að kaupa íbúð alveg niðrí miðbæ!!! sem hún flytur inní í júlí... Já þar verða partý haldin og alveg leyfilegt að fá að gista á gólfinu.... nú verða Sandgerðingarnir að koma í heimsókn á djamm í rvk, því við reddum gistingu.. á samt eftir að ræða þetta við Svandísi.. en hún gerir ekkert þessa dagana annað en að vinna... Allavega lofa því að þegar fólk kemur verður sett tónlist á, tjattað, drukkið, reykt ( ekkert reykingarbann) og dansað... Mikið fjör...

Ég fór á suðurnesjin á hvítasunnuhelginni, hefði ekki komið í langan tíma.. djammið var þvílíkt skemmtilegt á laugardaginn, en hræðilega leiðinlegt á sunnudaginn!!! Arna Vala reddaði gistingunni og öllu viðhaldi nærrum því.. hehe.., ásamt Nonna sem reddaði partýinu... Ég fór í heimsókn til Ásu og hitti líka Silju, mjög gaman að hitta skvísurnar.. Ella var hinsvegar fyrir norðan þannig hitti elskuna ekki neitt :(..

Jæja en ætla að kveðja að sinni...
Verð í bandi, en þar sem sumarið mun  snúast um mikla vinnu, mikil innkaup og mikið djamm... þá veit ég ekki hversu mikið ég mun blogga.. en lofa að það mun koma inn við og við.. og ps. ég er því miður ekki komin með leið á djammlíferninu og er ennþá makalaus, en þetta er spurning sem ég er búin að þurfa að svara svoldið oft í vikunni!!!!!!!!!!


Ţekkir ţú einhvern í svipađari stöđu???

06. maí 2007 klukkan 19:13
Amma og afi...

Er ekki alveg gríðarlega kósý hjá ykkur? Afi þú sem hefur unnið hörðum höndum allt þitt líf sem vélstjóri, varst aldrei heima, og misstir af fæðingu allra barna þinna og minnar. Núna færðu þó að sofa út og vera heima allan daginn og horfa eða hlusta á fréttir...
En þú amma, vannst á heimilli fyrir fatlaða, vannst á spítalanum, allt sem borgað var af ríkinu og ólst upp þrjú börn.
Ekki má gleyma húsinu sem þú afi og bræður þínir byggðu... Mikið hafið þið það gott núna, í sætu litlu íbúðinni ykkar og þurfið ekkert að gera...

NEI... því miður.... svona er raunveruleikinn ekki... fjárhæðin sem þau lifa á saman yfir mánuðinn þegar, búið er að borga af húsinu, rafmagn og hita og sjónvarp er nákvæmlega 65 þúsund... þá á eftir að kaupa í matinn út mánuðinn og já lyf, sem eru ekki greidd mikið niður af ríkinu. Já mikið hljótið þið að hafa það gott.... eftir allt sem þið hafið unnið yfir æfina og svona endið þið... ekki má gleyma að hnén á þér afi eru að gefa sig.. hvenær kemstu í aðgerðina? já okey... eftir 5 mánuði!!! Fínt að þú haltrir bara þangað til það er ekki eins og þú þurfir að gera eitthvað þú ert svo gamall....

En bíddu hefur gamla fólkið það bara slæmt...

Elsku frændi... hvað varstu eiginlega að pæla þegar þú leyfðir sjálfum þér að fá blett yfir hægra hvolf heilans sem gerir það að verkum að þú mátt ekki verða fyrir álagi því þá lamastu öðrum megin... hvað varstu að pæla?? Því já við vitum öll að allir sem verða öryggjar eru bara að leika sér.... Já frændi, núna máttu bara vinna 50 % vinnu og hvað færðu mikið frá ríkinu í staðinn?? hmmmm... já þú getur ekki keypt þér bíl, heldur rétt svo endum saman á íbúðinni... og já átt varla pening út mánuðinn fyrir mat....
Já íslenskur veruleiki....
Villt þú enda eins??? Þetta er þjóðfélagið í dag... heimtum breytingu!! Kjósum annað en íhaldið... burt með ríkisstjórnina og gefum öðrum tækifæri á að lifa... já öðrum en þeim ríku!!!!!

sćl öll sömul... ekkert ađ frétta

21. apríl 2007 klukkan 11:16
Já mikið að frétta hér hjá mér...

Ég er komin með vinnu fyrir sumarið... Í  búðinni evans í Kringlunni.. alveg ógeðslega gaman.. litla sem ég á eftir að eyða öllum peningnum mínum í föt... :)

Ég er alveg búin að vera skíta á mig í að vera í sambandi við vinkonur mínar suðurfrá.. frétti hinsvegar að Kristín væri búin að eiga lítinn strák.. til hamingju elskan.. :*

Prófin að fara að byrja.... stressið byrjað að segja til sín :/ 

En oj maður.. ég var í heimsókn hjá svandísi þegar hún var að vinna í sjoppunni og viti menn, þá kemur maður inn í sjoppuna... spikfeitur rauðhærður gaur með skalla... mér fannst ég kannast svona gríðarlega við hann... Kallinn var heillengi í sjoppunni kaupa sér ís og nammi og video.. ég var orðin ekkert smá pirruð að muna ekki hvar ég hefði séð þennan mann áður... en þá tekur hann videospólu og segir mér kennitölu og nafn... og litla sem ég fékk í magan maður... Karlinn hét Grétar og var þetta ógeð sem Kompás plataði með barnaklámið... Gaurinn sem er búinn að nauðga litlum strákum og stelpum... OJ!!!!!!!! já og svo ekki nó með það þá komumst við að því að hann byggi þvílíkt nálægt Bróðir Svandísar og börnum hans... bara ógeðslegt....

Hvað er hægt að gera við svona menn??????????????


En allavega ætla að fara að hringja í Ellu... sakna elskunnar minnar það er svo langt síðan ég hef hringt í hana...

Sía...

hókus pókus...

14. apríl 2007 klukkan 13:32
Já mikið á ég að vera búin að læra mikið en ekki gert mikið...

Bjarkar tónleikarnir voru þrusu góðir!!!! Tók gömul lög ásamt nýju lögunum af plötunni og það var ógeðslega gaman.. Hot chip stóðu líka fyrir sínu og hefði ég bara viljað djamma og dansa af mér rassgatið á meðan þeir voru að spila...

Silja er búin að vera dugleg að koma í heimsókn... hún kom tvo daga í röð, en seinni daginn kom Ása líka.. Ég og Silja fórum í nornabúð sem var svakalega spúkí en ógeðslega flott.. ég ætla aftur að fara þangað.. og þið sem hristið hausinn og fussið nornabúð kommon, þá segi ég bara á móti.. já nornabúð,margir af okkar frægustu fornfeðrum byggðu líf sitt á rúnalestri og ég held að flestir hér hafi farið til spákonu og framvegis.. allavega heimasíða búðarinnar er www.nornabudin.is

Silja var líka mjög heppin... hún fékk tvær stöðumælasektir... á svona hálftíma.. ég var ekki alveg að standa mig í að minna hana á að borga í stöðumælinn...

Berglind litla hennar Ásu var fyrst ekkert gríðarlega hrifin af mér, en það bættist ágætlega úr því.. enda er ég svo barnvæn :) híhí...

Djamm í kvöld og það verður það seinasta þangað til 18 maí. Já pælið.. prófin að fara að byrja þannig enginn tími verður fyrir djamm..

bið að heilsa í bili...

Vúhú... Bjarkartónleikar..!!!!!!!

09. apríl 2007 klukkan 18:35

Já á leiðinni á tónleika... vúhú... Siggi frændi gaf mér og Svandísi miða á Björk í Laugardagshöll!!! Vúhú... geggjað stuð.. og ég sem er alltaf að væla að ég geti ekki farið á neina tónleika í allan vetur vegna peningaleysis.. en neinei svo fæ ég bara frítt á Björk og auðvitað hot chip... Og ekki nó með það þá fékk ég líka frítt á Sykurmolana þegar þeir voru með tónleika vegna þess að pabbi Rósu gaf mér miða..


Heppin að eiga rétta vini...

björk

Af hverju....

28. mars 2007 klukkan 19:21

Af hverju já af hverju eru tvö orð, ég hef alla tíð skrifað afhverju sem eitt orð... en það er ekki rétt víst...  En af hverju í hvert skipti sem maður skoðar úrval útsýn eða heimsferðir bæklinga hljóða tilboðin svona:

Aðeins eitthvað kr. á mann.. miðað er við tvo fullorðna og tvö börn. !!!!!

Sko ég skil ekki af hverju aldrei stendur...

Ert þú ein/n?  Þarft þú að borga af íbúð og bíl ein/n? Þarft þú að borga jafn mikið í afmælisgjafir og par?  Færð þú aðeins einn launaseðil inn um lúguna hjá þér? Þarftu ein að borga hita, rafmagn, tekjuskatt og svo margt fleirra. Getur varla eldað máltíðir þ´vi þú ert þá bara að elda fyrir sjálfa/n þig. Ert þú í námi eða ný búin með nám??? Færðu kanski ekki nógu hátt greiðslumat til að kaupa þér íbúð því þú ert aðeins með ein laun á mánuði?? Er ekki nógu erfitt fyrir þig að vera á lausu fyrir og eiga enga/n til að eyða kvöldstundum með? En ekki örvæta því við getum aðeins kætt upp á lífið fyrir þig.. Við erum með tilboð út til sólarlanda fyrir einstaklinga!!! Aðeins það ódýrasta fyrir þig... Einstaklingar eiga líka skilið að fá að fara út fyrir minna en 50 þús!!!

Það ætti sko líka að vera sérstakt tilboð fyrir einstæðar mæður og feður!!!!

Já núna hrista margir hausin og munu öskra að ég viti bara ekki neitt um það hversu dýrt það er að eiga börn og miklu dýrara að kaupa fyrir marga að borða og svona. jájá.. ég allavega sé það ekki þar sem helmingurinn af vinkonunum mínum eru að byggja og hinn helmingurinn býr í góðum íbúðum eða húsum... ;)

Allavega Fríða kveður sem er að deyja henni langar svo að fá ódýrt  far út í sólina!!

p.s. Hvernig er nýja útlitið á blogginu???

Já í leyfi...

12. mars 2007 klukkan 11:04
Sælt veri fólkið.. það er búið að vera vitlaust að gera hjá mér í skólanum þannig ég er búin að vera í leyfi frá bloggi... þarf samt ekkert að afsaka mig þar sem að þegar ég er að fletta í gegnum bloggfélagana mína hér á hliðinni er nær aldrei neitt að gerast á neinnu síðu... nema kanski hjá Rósu og Lindu ... kommon fólk þarf að fara að skora á einhverja að blogga???
Allavega eins og staðan er núna hef ég enga skoðun á neinu, ég hef ekkert til að hrósa eða væla útaf... það eina sem kemst inn í hausin á mér eru verkefni eftir verkefni, lestur eftir lestur....
Og já árshátíðin var algjört æði... alveg rosalega gaman... svo var líka æðislegt á suðurnesjum helgina áður...
Grey's Anatomy er í kvöld... gæða þáttur...
Eins og ég sagði er hausinn á mér í pásu og eina sem mér finnst skemmtilegt er að fá pásu á lærdómi, leggjast upp í sófa með tærnar upp í loftið og horfa á sjónvarpið...
En allavega heyri í ykkur seinna, þegar ég er í meira blogg stuði og kanski búin að mynda mér skoðun á eibhverju málefnalegu....

Prófíll

  • Nafn: Fríđa Stefánsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: nemi í Kennaraháskólanum
  • Hjúskaparstađa: makalaus

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit